Skip to main navigation Skip to search Skip to main content

Fæðuval og notkun bætiefna á meðgöngu og 12–24 vikum eftir fæðingu

Research output: Contribution to journalArticlepeer-review

Útdráttur/Abstract

Inngangur Þekking á fæðuvali og næringarástandi barnshafandi kvenna á Íslandi hefur aukist undanfarin ár, en minna er vitað um mataræði mæðra fyrstu þrjá til sex mánuðina eftir fæðingu barns. Markmið rannsóknarinnar var að bera fæðuval og notkun bætiefna snemma á meðgöngu saman við tímabil eftir fæðingu. Efniviður og aðferðir Barnshafandi konum var boðin þátt taka í rannsókninni við fósturskimun í 11.–14. viku meðgöngu á Landspítala á tímabilinu október 2017 til mars 2018. Eftir fæðingu fengu þær boð um þátt töku í framhaldsrannsókn. Fæðuval og notkun bætiefna var kannað með sama gildismetna spurningalista við 11.–14. viku meðgöngu og 12–24 vikum eftir fæðingu (n=224). Niðurstöður Tíðni neyslu á rauðu kjöti, sælgæti og ís, sætabrauði og kexi, kaffi og áfengi var meiri 12–24 vikum eftir fæðingu barns heldur en við 11.–14. viku meðgöngu (p<0,05). Hins vegar lækkaði tíðni neyslu á ávöxtum, mögrum fiski, sýrðum mjólkur vörum og mjólkurvörum í heild (p<0,05). Hlutfall kvenna sem borðaði að minnsta kosti tvo skammta af ávöxtum á dag fór úr 16% á meðgöngu niður í 8% eftir fæðingu. Rétt tæplega fjórðungur kvenna borðaði fisk tvisvar sinnum í viku eða oftar á með göngu, en einungis 10% þátt takenda borðaði fisk tvisvar í viku eða oftar eftir fæðingu barnsins. Yfir 80% kvenna tóku einhver bætiefni sem inni halda Dvítamín í upphafi meðgöngu, en það hlutfall var komið undir 50% þremur til sex mánuðum eftir fæðingu barns. Ályktanir Neysla á fæðutegundum sem eru hluti af næringarríku mataræði minnkar og neysla á fæðutegundum sem teljast óhollari eykst eftir fæðingu. Í ljósi þess að fæðu val og næringarástand getur haft áhrif á bæði heilsu móður og næringar gildi móður mjólkur, er ástæða til að ítreka mikilvægi þess að fylgja fæðu ráð leggingum einnig eftir fæðingu
Original languageIcelandic / íslenska
Pages (from-to)48-55
Number of pages8
JournalLjósmæðrablaðið
Volume102
Issue number1
Publication statusPublished - Jul 2024

Cite this